17.9.03

okokok

jæja. ungverjinn er snúinn aftur. bloggþurrð undanfarinna daga skýrist af óendanlegum lærdómi, hverjum ungverji ætti að vera að sinna í þessum skrifuðum. Það er ótrúlegt, en ungverji hefur ekki verið í skólanum í 2 vikur, en óskar samt einskis heitar en að önninni verði lokið á morgun. Helst ekki síðar en í gær. Það er ekki vegna þess að námsefnið sé e-ð leiðinlegt, heldur vegna þess að magn efnis er óendanleg. Hvorki meira né minna!!!

Annars er það að gerast að Dick Grasso er með 140 millur á ári. Dollara þ.e.. Ekki slakt það. Mönnum taldist til að Dick Grasso hefði í laun á 3 dögum, jafn mikið og meðal láglaunamaður hefur á ári. Djöfull... maður er greinilega á rangri hillu.
Ástæðan fyrir því að ungverji veit þetta, er að CNN og CNBC fjalla um ekkert annað en þetta, allan djöfulsins daginn!!! CNN og CNBC eru einmitt einu stöðvarnar sem yfirboðarar Díák Szálló sjá sér fært að kaupa. Ekki séns að kaupa SKY 1, eða BBC... þetta er náttúrulega óþolandi.

Á morgun er um margt merkilegur dagur. Þá fara 3. árs nemarnir í fyrsta Patho-practical. Vegna kvartana um blóðsúthellingar á þessari síðu, mun ungverji ekki birta "the ´to do´ list" slíkra kennslustunda. En um er að ræða krufningar á nýlátnum einstaklingum. Ungvernji óskar 3. árs nemunum Daða, Björgu, Veigu og Stebba velfarnaðar í fyrsta tímanum. Ekki borða stóran morgunmat.

Ungverji hefur ítrekað reynt að ræsa örmýktarsendiboðann, og hefur gengið vel. Sýni ungverji hins vegar minnstu tilburði til að hefja umræður við e-n, er slökkt á sendiboðanum, og ungverja kurteisislega boðið að senda villumeldingu til microsoft. Geri ungverji það dirfast Vilhjálmur Hliðs og félagar að spyrja um ungverja hagi, hans datamaskínu og hugbúnað þann er ungverji hefur hikstalaust rænt af Örmýkt Hf. Í annarri eins vitleysu hefur ungverji aldrei lent!!! Óþolandi

Það er svo að frétta að fyrsta árs nemarnir eru alls 9. Það hækkar tölu íslendinga á staðnum töluvert, og eru nú 24 á staðnum. Gaman að því. Þetta veldur þó því að ekki myndast eins djúp tengsl milli 1.árs nemana núna, og nema á efri árum (2., 3. og 4.). Gaman er engu að síður að lifa í Debrecen þessa dagana. Veðrið eins og best verður á kosið, logn og heitt, þó ekki of heitt. Helgarinnar er beðið með mikilli eftirvæntingu, enda fótboltamót á dagskrá. Ekki er örgrannt um að ungverji hafi verið beðinn að standa vaktina í vörninni, líkt og félagi Atli með Þéttum, nú ekki alls fyrir löngu á HM. Ungverji hlakkar nú bara til, en gaman verður að sparka í tuðru á nýjan leik, enda leikur sá ekki verið leikinn síðan í Baunalandi, hvar ungverji bjó [eins og lesendum er í fersku minni] um nokkurt skeið.

ungverji lætur þetta duga í bili, biður afsökunar á bloggfæð, en um leið lofar betri og bjartari dögum í skammdeginu í janúar. Þangað til næst...


ps.

Ungverji vill taka fram, til að koma í veg fyrir allan misskilning, að Vodafone hefur verið tekið í ungverja þjónustu, enda neitaði Westel ungverja aðgang. Nýtt númer fyrir þá sem vilja senda sms, nú eða hringja er 00-36-70-554-2435

L, nú eða unnu

|

11.9.03

andköf...

...hraður andardrátturinn leyndi sér ekki. Hann var þá á lífi eftir allt saman. Ungverjinn dregur andann, og líður að sögn ágætlega. Lesendur þurfa því ekki að bíða mikið lengur eftir fyrsta unverjalandsbloggi vetrarins, því það er hér.

Ferðalag Ungverja gekk vonum framar, þrátt fyrir storm á KEF. Allt við það sama á Díák Szalló. Nýtt fólk, ný hús, en ennþá ungverjinn. Tóta er reyndar flutt við hlið Ungverja. Gaman að hafa nágranna til að tala við... Annars er skólastarf hafið. Mikil vinna fyrir höndum.

Svo er við hæfi að segja:

KR: Til hamingju með titilinn.
Ísland: Til hamingju með árangurinn
djöfull er þetta klént...

ekki meira í bili

|

4.9.03

Adios amigos

Ungverjinn kveður landann. Lagt verður upp í langferð, klukkan 13:20 farið til Köben og þaðan til Búdapest. Ungverjinn þakkar öllum, nema einum*, gott og ánægjulegt sumar. Góðar kveðjur.

*Hinn eini er maðurinn sem sparkaði ungverja í götuna um daginn.

|

2.9.03

USA

Ungverji hefur verið upptekinn í dag. Keypt var nýtt vegabréf af Útlendingastofnun á litlar 9200 krónur. Keyptar voru nýjar snúrur í nýjar græjur fjölskyldunnar. Einnig var litið við á Ódýra tónlistar og myndbandamarkaðnum í Perlunni. Þar, meðal annars keypti Ungverji heimildarmynina Bowling for Columbine. Þessi kvikmynd er hreint út sagt frábær. Michael Moore gerir þessa heimildarmynd, og les inn á hana. Myndin fjallar um byssueign bandaríkjamanna, sem er ógnvænleg, en það sem er enn ógnvænlegra, er að þeir hika ekki við að plaffa á nágrannan hafi þeir ekkert betra að gera. Þannig er það bara.

Í kjölfarið á þessari mynd fór Ungverji að hugsa...

Margfrægt er hugtakið "The american dream". Ungverji telur að þetta hugtak, ásamt öðru, sé rótin á vandamálum þeim sem bandaríkjamenn eiga við að etja, innanlands. Allir hafa rétt á að leita uppi ameríska drauminn, sama hvað það kostar. Eins og allstaðar, eru allir menn fæddir jafnir í bandaríkjunum. Hins vegar virðast margir ekki sætta sig við að sumir eru jafnari en aðrir. Það sem Ungverji á við með þessu, er að ekki geta allir verið jafnefnaðir. Þetta veldur pirringi hjá hinum sem eru ekki eins jafnir og flestir. Þessi pirringur er að sjálfsögðu ekki næg ástæða til þess að fara með byssuna út, þegar menn sækja dagblaðið og plaffa gaurinn hinum megin, vegna þess að hann fær hærri laun. Það sem meira er, er áróður fjölmiðla. Hvað sjá bandaríkjamenn þegar þeir kveikja á fréttunum á kvöldin? Morð, byssur, rán og fleiri morð. Þetta elur á ótta manna. Eðlilega. Hvernig myndi hinum almenna landa líða ef menn gengju um með byssur og barefli, drepandi annan hvern mann... ekki vel.

Með allt þetta, og svo hvernig sölu á byssum er háttað... Ungverji skilur hvers vegna nánast hver maður í bandaríkjunum hefur aðgang að byssum, tölfræðilega að sjálfsögðu. Ungverji hvetur þá sem ekki hafa séð myndina Bowling for Columbine. Hún ætti að vera skylduáhorf; sérstaklega fyrir bandaríkjamenn, aðallega þó forsetann sjálfan Gorg Búsk.

|