8.10.02

Gymmið...

þetta er rosalegt! Sjaldan hefur Ungverjanum liðið jafn vel. Gym tvo daga í röð, og lítur út fyrir þriðja daginn. Í morgun var farið og keypt duft. Prótein í silfruðum dunk varð fyrir valinu. Ungverjinn hefur enn ekki bragðað seyðinn, en það stendur til, eftir næstu æfingu. Það lítur því út fyrir að Ungverjinn komi í jólasteikina tálgaður, ljósabrúnn og sætur.

ps.

þeir sem mig þekkja, vita að ég fer ekki í ljós, og hef alltaf verið sætur...

|